Home
 
Sitemap Logg inn
    
Om NICe > Íslenska

Íslenska

Norræna nýsköpunarmiðstöðin (Nordisk InnovationsCenter) á að vinna að því að Norðurlönd verði virkur innri markaður án landamæra þar sem ekkert kemur í veg fyrir frjálsan flutning hæfni, hugmynda, fjármagns, fólks eða afurða.

Stofnunin á að stuðla að aukinni samhæfingu nýsköpunarkerfa ríkjanna þannig að fyrirtæki í einu ríkjanna geti sótt um aðstoð frá nýsköpunarkerfi í öðru þeirra. Hún á þannig að stuðla að sameiginlegum þekkingarmarkaði á Norðurlöndum.

Hugmyndinni á að hrinda í framkvæmd fyrst og fremst með því að koma á nettengslum milli allra þeirra sem vinna að nýsköpun á Norðurlöndum. Meginreglan við forgangsröðun stofnunarinnar er að rannsóknir og þróunarstarf á Norðurlöndum sé í aðalatriðum mál viðkomandi ríkis. Norrænar stofnanir, sem fjármagna rannsóknir, hafa árlega um 300 miljarða króna til ráðstöfunar. Takmarkað fjármagn Norrænu nýsköpunarmiðstöðvarinnar á þess vegna að nota til að hámarka nýtingu þekkingar þvert á öll landamæri í því skyni að efla nýsköpun í atvinnulífinu.

Miðað er við að allir geirar geti sótt um fjármögnun hjá stofnuninni en hún mun samt sem áður leggja áherslu á takmarkaðan fjölda forgangssviða, sem svo verða endurnýjuð með tíð og tíma.

Verkefni stofnunarinnar eiga að einkennast af:
  • Sköpun nettengsla
  • Samverkun
  • Samtengingu
  • Útbreiðslu á "Best Practice"
Skilyrt er að að minnsta kosti þrjú norrænu ríkjanna vinni saman að verkefni og stuðla skal að því að Eystrasaltsríkin og Norðvestur Rússland verði einnig með. Stofnunin á ekki að fjármagna verkefni, sem hafa viðskiptaleg markmið til hagsbóta fyrir örfá fyrirtæki, þótt fyrirtæki frá þremur norrænu ríkjunum vinni saman að þeim.

Skrifstofa Norrænu nýsköpunarmiðstöðvarinnar er í Ósló en starfsmenn hennar eru frá öllum norrænu ríkjunum. Íslenski fulltrúinn heitir Sigríður Thormóðsdóttir og hun svarar spurningum sem mega vera á íslensku, ensku eða skandinavísku.



Sigríður Thormóðsdóttir
Seniorrådgiver
Mobil +47- 915 76 577
E-mail: s.thormodsdottir@nordicinnovation.net



Printervennlig versjon
Fokusområder
>> Innovasjonsrepresentasjoner i Asia >> Toppforskningsinitiativet (TFI) >> MMI - Measured and Managed Innovation >> Trade in services >> Designing Effective Nordic Innovation Programmes (DENIP) >> New Nordic Food >> Healthy choices >> Functional food >> Food Safety >> Tourism >> Sustainable renovation >> Seed & Venture Capital >> Creative Industries >> Environmental Technology >> Innovation Policy >> Micro- and NanoTechnology (MINT) >> Innovativt byggande >> Technology Foresight >> Grenseløst nordisk næringsliv >> Norden & Europe (NICe & EU)
Nyhetsbrev:
Nordisk InnovationsCenter (NICe) sin årsrapport for 2009 tar for seg de viktigste temaene og begivenhetene fra året som har gått. Nordisk InnovationsCenter gjør nå innovasjon i marin sektor til et nytt satsingsområde og dette er bakgrunnen for at årets årsrapport har fått tittelen ”Fremtiden er i det blå ...er løsningen til havs?".
Her finner du Årsrapporten 2009

Tietoa suomeksi
Íslenska
 
 

Copyright © 2010 Nordisk InnovationsCenter All rights reserved. webmaster @ nordicinnovation.net

Nordisk InnovationsCenter | Stensberggt. 25 | NO-0170 Oslo Telefon +47 47 61 44 00 | Fax +47 22 56 55 65 | info @ nordicinnovation.net